Ferðablogg!
Jæja, ætla að taka ferðablogg á þetta og segja frá Hollandsferðinni minni :D Pabbi og Hemmi þjálfi voru líka þarna ;)Allavega, þetta var bilað gaman og..já, stóð mig vel að mínu mati og skemmti mér geggjað vel ;D
Laugardagur: Vaknað kl. 5 og fengið sér að éta og síðan bara haldið uppá völl, flogið um 8 og lennt í hollandi um 1 leytið.. Jan, yfirmaður unglingastarfsins hjá Willem II tók á móti okkur og við keyrðum strax áleiðis til Tilburg þar sem Willem er. Stoppuðum reyndar í bæ soldið frá til að horfa á u17 liðið spila við u19 liðið hjá einhverju amateur liði þarna, unnu með eitthverjum mun. Voru miklu betri. Síðan keyrðum við bara uppá hótel og borðað, tv og sofnað.
Sunnudagur: Morgunmatur, út að hlaupa, tjillað, hádegismatur, síðan kom Harry, þjálfarinn hjá u17 og náði í okkur og fór með okkur til Rotterdam á til að horfa á Feyenoord og Groningen í umspili fyrir evrópukeppnina, 1-1 jafntefli enn Groningen vann samt á aggregate. Allavega, síðan bara keyrt heim, kvöldari og sofnað.
Mánudagur: Vaknað, morgunmatur og síðan bara tjillað, hádegismatur og síðan fórum við og horfðum á æfingu hjá aðalliðinu, það var fínt. Síðan fór ég bara á æfingu með u17, píptest og hraðatest, fínt á fyrstu æfingunni! :D hehe það var ágætt sko. Síðan bara uppá hótel í kvöldara og sofnað.
Þriðjudagur: Morgunmatur, Fórum uppá æfingasvæði og skoða völlinn og svona. Síðan niðrí bæ, keypti mér takkaskó og svona bara skoðað og e-h. Síðan var aftur æfing um kvöldið, spil, 10v10..endaði 1-1 enn mitt lið vann í vító, víj :D Síðan bara uppá hótel, kvöldari og sofnað.
Miðvikudagur: Morgunmatur, horft aftur á æfingu með aðalliðinu, síðan hádegismatur og síðan skoðunarferð um borgina. Síðan seinnipartinn fórum við að horfa á u11 og u12 spila leiki. Gaman að sjá þá spila og sjá muninn á jafnöldrum þeim hérna heima! Bilað góðir gaurar þarna miðað við aldur. Síðan hótel, borða, sofa.
Fimmtudagur: Vaknað hálf 7(hálf 5 á ísl, 2 tíma munur!:O) og fengið sér að borða, síðan fórum við á mót í Eindhoven, þar voru lið eins og PSV, Ajax, Herenveen, Aachen, Genk og fl lið frá hollandi, belgíu og þýskalandi. Allavega, okkur gekk ekkert voða vel, lenntum í 11 sæti, enn vorum soldið mikið óheppnir, töpuðum 3 leikjum 1-0, td á móti Ajax. Jafnt gegn PSV og svona eitthvað. Síðan bara keyrt uppá hótel, fengið sér að borða og síðan á fund með Jan, verið að meta mig og eitthvað, frá 8-12! Hann talar endalaust! Ókei, síðan sofnað.
Föstudagur: Vaknað 8, pakka, morgunmatur, keyrt til Amsterdam, flugvöllur, og flogið heim. Fór síðan á ball um kvöldið, sem var fínt sko..
Allavega, held etta sé orðið vel gott og vil bara fá komment á etta :D
bleee